Námskeið: Hópeflisleikir og verkefni
- til að nota í kennslu og hópastarfi


Námskeið fyrir hverja?
Námskeiðið er einkum ætlað kennurum í efstu bekkjum grunnskóla, framhaldsskólakennurum, starfsfólki félagsmiðstöðva og öðrum þeim sem vinna með ungu fólki í hópastarfi.
 
Aðferðir
Kenndir eru leikir sem hafa mismunandi markmið, m.a. ísbrjóta, nafnaleiki, samvinnuleiki og orkugjafa auk þess sem unnin verða verkefni sem stuðla að því að styrkja bæði samkennd og liðsheild innan hópsins. 
 
Markmið
Að bæta verkfærum í verkfærakistuna - kynnast fjölbreyttum leiðum til að takast á við ólíka þætti sem kunna að koma upp í hópastarfi.
 
Skráning - pantanir
Hægt er að panta námskeiðið inn á starfsstaði, m.a. inn í skóla, félagsmiðstöðvar,  fræðsluskrifstofur og sveitarfélög  eða óska eftir að komast á opið námskeið hjá Össu . Vinsamlegast hringið í síma 616 9770, sendið póst á assa@assaisland.is eða hafið samband hér.
 
,,Á námskeiðinu ,,Hópeflisleikir og verkefni til að nota í kennslu og hópastarfi" lærði undirrituð fjölda skemmtilegra leikja og verkefna sem munu nýtast vel í starfi. Aðferðirnar sem Ingibjörg Valgeirsdóttir kenndi eru fjölbreyttar, allt frá leiðum til að þjappa saman hópum til verkefna sem miða að því að æfa samhæfingu og reyna á samvinnu innan hópa. Námskeiðið var stórskemmtilegt og getur undirrituð svo sannarlega mælt með því".
 
Ingunn Helga Bjarnadóttir
Verkefnastjóri starfsþróunar, Akureyrarbær
Sjá umsagnir hér.
 
Verkefni Stjórnendaþjálfun Starfsmannaþjálfun Hópefli
 
 
 
 
 
 Eyvindur og Halla. Nýtt!
Starfar þú með ungu fólki? Fjör í 45 mínútur!