AssA Stjórnendaþjálfun

AssA Stjórnendaþjálfun er byggð á kennsluaðferðum og hugmyndafræði Jonathan Gosling og Henry Mintzberg.  Gosling og Mintzberg hafa notað aðferðir sínar í þjálfun fyrir stjórnendur fyrirtækja og stofnana og við kennslu í meistaranámi í háskólum víða um heim, m.a. við MBA-námið í Háskólanum í Reykjavík.
Forsenda fyrir árangri í stjórnendaþjálfuninni er traustur hópur. Hver stjórnandi mætir með verkefni/vandamál sem hann er að kljást við í starfi á þeim tímapunkti sem þjálfunin fer fram. Leitað verður leiða til lausna og persónulegra og faglegra framfara. Í þjálfuninni er mikil áhersla lögð á ígrundun (reflection) sem leið til árangurs. 
Hægt er að panta stjórnendaþjálfun inn í fyrirtæki, stofnanir, félagasamtök eða fyrir aðra hópa.  Einnig verður stjórnendaþjálfun auglýst opin umsækjendum. 
 
Mynd: Leadership Round Tables þar sem þeir Jonathan Gosling og Henry Mintzberg kenndu aðferðir sínar í MBA-náminu í Háskólanum í Reykjavík, júní 2008. 
 
 
Verkefni
Stjórnendaþjálfun
Starfsmannaþjálfun Hópefli