Í úrslitum um val á Strandamanni ársins

Ingibjörg Valgeirsdóttir var ein af þremur aðilum sem fengu flestar tilnefningar í vali á Strandamanni ársins 2009, en AssA, þekking & þjálfun sá um framkvæmdastjórn sýningarinnar Stefnumót á Ströndum s.l. sumar. Tilnefningin er mikill heiður og viðurkenning fyrir alla þá sem komu að uppsetningu á sýningunni. Umsögn um Ingibjörgu sem birtist á vefnum www.strandir.is má sjá hér að neðan en vefurinn stendur að valinu.
 
Aðrir sem fengu flestar tilnefningar voru Áhöfnin á Grímsey ST 2 og Sigurður Atlason á Hólmavík. Í seinni umferð kosningarinnar bar Sigurður Atlason sigur úr býtum og er hann vel að sigrinum kominn fyrir bæði óeigingjarnt og ómetanlegt framlag til menningar- og atvinnulífs á Ströndum. Um afar fjölbreytt framlag Sigurðar á liðnu ári má lesa hér auk þess sem gaman er að geta þess að hann var einn af hugmyndasmiðum Stefnumóts á Ströndum, var í framkvæmdastjórn sýningarinnar og ein af dyggustu stoðunum við undirbúning hennar.
 
Ingibjörg Valgeirsdóttir -  umsögn sem birt var á vefnum www.strandir.is:

Einn af stærstu atburðum ársins 2009 á Ströndum var vel heppnuð atvinnu- og menningarmálasýning sem haldin var í ágústlok. Sýningin bar heitið Stefnumót á Ströndum og tókst afbragðsvel, ekki síst vegna þess að Ingibjörg Valgeirsdóttir frá Árnesi í Trékyllisvík og fyrirtæki hennar AssA, þekking og þjálfun, stýrði framkvæmdinni af mikilli alúð og dugnaði. Ingibjörg stofnaði á árinu 2009 fyrirtækið AssA, þekking og þjálfun, en það hefur þegar getið sér gott orð við margvíslega starfsmanna- og stjórnendaþjálfun víða um land, hópefli og undirbúning fyrir gönguhópa sem tekið hafa stefnuna á Hornstrandir, svo dæmi séu tekin um verkefni þess.
 
Um Ingibjörgu sagði í tilnefningum að hún væri ,,afbragðs stjórnandi, nákvæm og dugleg", ,,góður fulltrúi Strandamanna og Árneshreppsbúa" og ,,drífandi manneskja". Þá var einnig sagt að ,,fyrirtæki hennar AssA, þekking og þjálfun hefur vakið mikla athygli" og að ,,hún hefði við undirbúning Stefnumóts á Ströndum staðið sig með mikilli prýði þar sem hugmyndaflug hennar og atorka naut sín".
 
 
31. Jan. 2010 kl.23:49
Til baka...


Eldri fréttir


AssA 1 árs!

AssA, þekking og þjálfun fagnar 1 árs afmælinu sínu í dag, 1. júní 2010.  Fyrir ári síðan útskrifaðist ég úr MBA námi í Háskólanum í Reykjavík, slökkti á fréttunum og ákvað að hoppa út í djúpu laugina og stofna fyrirtæki. Þetta fyrsta ár er búið að vera öðruvísi en ég átti von á.  Það er búið að vera brjálað að gera! 

01. Jun. 2010 kl.22:53
lesa frétt...

Þjálfun ungra atvinnuleitenda

AssA, þekking og þjálfun hefur undanfarna mánuði verið í samstarfi við Hitt Húsið og Vinnumálastofnun um þjálfun ungra atvinnuleitenda.  Þjálfunin felst í 8 vikna námskeiði sem ber nafnið Vítamín, þar sem áhersla er m.a. lögð á tækifæri ungs fólks hér heima og erlendis.  Hópstjórar á námskeiðinu eru Agnar Jón Egilsson leikari og eigandi Leynileikhússins, Eva Einarsdóttir atvinnuráðgjafi hjá Hinu Húsinu, Frímann Sigurðsson kaospilot og markþjálfi og Ingibjörg Valgeirsdóttir framkvæmdastjóri hjá AssA, þekking & þjálfun.  Elísabet Pétursdóttir, verkefnastjóri hjá Hinu Húsinu hefur umsjón með verkefninu. Þessa dagana er níundi hópurinn að fara í gegnum námskeiðið en alls hafa á annað hundrað ungmenni útskrifast úr Vítamíni.
 

01. Jun. 2010 kl.21:21
lesa frétt...

Starfsdagur 70 stjórnenda Akureyrarbæjar


AssA, þekking & þjálfun sá nýverið um starfsdag stjórnenda Akureyrarbæjar í nánu samstarfi við Ingunni Helgu Bjarnadóttur starfsþróunarstjóra og undirbúningsnefnd á vegum Akureyrar.  Yfirskrift starfsdagsins var Starfsánægja og innri markaðssetning og var dagurinn skemmtileg blanda af afar áhugaverðum erindum og öflugu hópastarfi.  Alls tóku tæplega 70 stjórnendur þátt í deginum.
 

13. Apr. 2010 kl.18:40
lesa frétt...

Áhugasamir um Árneshrepp

Fjölmargar áhugaverðar hugmyndir komu fram á opnum hugmyndafundi sem haldinn var í Reykjavík um leiðir til að efla byggð í Árneshreppi á Ströndum. Áhugasamt fólk á aldrinum 20 - 70 ára fjölmennti á fundinn til að ræða tækifæri á þessu einstaka svæði. Eftir öflugt og skemmtilegt hugarflug fundargesta var hugmyndunum skipt niður í afþreyingu, atvinnumál, ferðaþjónustu, orkumál, samfélagsmál og samgöngur og málaflokkunum gerð ítarlegri skil.

27. Mar. 2010 kl.23:23
lesa frétt...

Atvinnumál kvenna: AssA kynnir starfsemi sína

AssA, þekking & þjálfun er eitt af 25 fyrirtækjum sem verða með á kynningu í Hugmyndahúsi Háskólanna föstudaginn 26. mars.     
Kl. 13:00 mun Árni Páll Árnason félagsmálaráðherra afhenda styrki til atvinnumála kvenna en AssA þekking & þjálfun var í hóp þeirra frumkvöðla sem hlaut styrk árið 2009.  Að því loknu mun Ingibjörg Gréta Guðmundsdóttir kynna Hugmyndahús háskólanna.  Þá mun Rúna Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri tengslasíðunnar www.connected-women.com taka við og kynna möguleika tengslaneta og hrista hópinn saman.  Kl. 16:00 verður boðið upp á  veitingar í boði Samtaka atvinnulífsins og hefst þá sýning styrkþega frá árunum 2008 og 2009.

26. Mar. 2010 kl.00:10
lesa frétt...

Opinn fundur á Hilton um eflingu byggðar í Árneshreppi

Fimmtudaginn 18. mars verður haldinn opinn hugmyndafundur á Hilton hótelinu við Suðurlandsbraut um hvernig styrkja má byggð í Árneshreppi. Fundurinn er framhald af fundi sem skólastjórarnir Elísa Ösp Valgeirsdóttir og Elín Agla Briem héldu fyrir unga Árneshreppsbúa í félagsheimilinu í Trékyllisvík þann 27. desember s.l.
 
Að þessu sinni gefst öllum brottfluttum og öðrum áhugasömum um eflingu byggðar í hreppnum tækifæri til að koma saman og viðra hugmyndir sínar.  Til dæmis verður skoðað hvernig þeir sem búa utan hreppsins geta lagt sitt af mörkum til að hlúa að byggðinni.  Eru allir velunnarar Árneshrepps hvattir til að mæta en fundurinn hefst kl. 20:00, 2 hæð, salur D.
 
 

17. Mar. 2010 kl.22:40
lesa frétt...

AssA - Akureyri 8. - 11. mars

AssA verður með þjálfun á Akureyri dagana 8. - 11. mars n.k.  Er þetta í fimmta sinn sem fyrirtækið tekur að sér þjálfun starfsmannahópa og námskeiðahald norðan heiða í nánu samstarfi við Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar (SÍMEY). Umsagnir heimamanna má finna hér, en alls hefur AssA þjálfað um 400 manns á svæðinu.  
 
Enn er hægt að bæta við þjálfun dagana 8. - 11. mars. Vinsamlegast hafið samand við Ingibjörgu Valgeirsdóttur í síma 616 9770 eða sendið tölvupóst í netfangið assa@assaisland.is

25. Feb. 2010 kl.21:16
lesa frétt...

Þróunarverkefni í Hagaskóla

AssA, þekking og þjálfun í nánu samstarfi við Sigríði Ástu Eyþórsdóttur iðjuþjálfa, (Sössu), vinnur um þessar mundir að þróunarverkefni með nemendum í 8. bekk Hagaskóla og foreldrum/forráðamönnum þeirra. Verkefnið sem ber nafnið ,,Það er gaman að eiga ungling" var eitt af nýsköpunarhugmyndum um betra borgarsamfélag sem hlaut styrk frá Reykjavíkurborg. Hagaskóli, Frístundamiðstöðin Frostaskjól og Þjónustumiðstöðin Vesturgarður eru einnig dyggir stuðningsaðilar verkefnisins.

15. Feb. 2010 kl.22:42
lesa frétt...

Ertu á leið á Strandir / Hornstrandir næsta sumar?

AssA, þekking & þjálfun býður  nú upp á undirbúningsnámskeið fyrir gönguhópa sem ætla að leggja leið sína á Strandir / Hornstrandir næsta sumar. 
 
Áhersla er lögð á skipulagningu, leiðarval, pökkun, siglingar, þjónustu heimamanna, að ferðast í hóp, umgengni við náttúruna og hvernig maður getur fengið sem mest út úr bæði ytra og innra ferðalaginu sem óhjákvæmlega á sér stað á göngu um þetta einstaka svæði.
 
Leiðbeinandinn Ingibjörg Valgeirsdóttir er uppalin í Trékyllisvík, nyrstu byggð Stranda. Hún hefur margra ára reynslu af að ganga með hópa um svæðið frá Ófeigsfirði í Hornvík.  Hún gjörþekkir svæðið, heimamenn og þá leyndardóma sem Strandirnar búa yfir. 
 
Undirbúningsnámskeiðið, sem er sérsniðið að hverjum hóp fyrir sig, er ætlað bæði reyndu og óreyndu göngufólki. Áhugasamir hafið samband í síma 616 9770 eða sendið tölvupóst í netfangið ingibjorg@assaisland.is
 

13. Jan. 2010 kl.19:33
lesa frétt...

Gleðileg jól!

Kæru þið!

Við sendum ykkur okkar bestu óskir um gleðileg jól og farsælt komandi ár!
 
AssA, þekking & þjálfun þakkar frábærar viðtökur á árinu sem er að líða og hlakkar til að ferðast með ykkur áfram - þangað liggur leiðin!

23. Des. 2009 kl.02:20
lesa frétt...

Eyvindur og Halla: Frí heimsending á gjafabréfum

AssA býður upp á fría heimsendingu á gjafabréfum Eyvindar og Höllu fram að jólum.  Sendum bæði í heimahús og á vinnustaði. Eyvindur og Halla verða í Esjustofu, veitinga- og þjónustumiðstöð við Esjurætur, laugardagana 16. janúar og  13. febrúar auk þess sem Eyvindur og Halla verða á Akureyri í mars. 
 
Gefðu góða upplifun - gefðu ljúfan laugardagsmorgun með hádegisverði fyrir tvo. Jólatilboð kr. 7800. Hringdu í síma 616 9770 eða sendu okkur línu á assa@assaisland.is  Sjá nánar hér.
 
 

14. Des. 2009 kl.16:54
lesa frétt...

Gefðu góða upplifun í jólagjöf

Nýtt á Íslandi fyrir hjón/pör sem setja sambandið í fyrsta sæti og vilja eiga gæðatíma saman. Sérstök og eftirminnilega morgunstund í fallegu umhverfi við Esjustofu, dagskrá full af notalegri upplifun og hádegisverður fyrir tvo.
 
AssA, þekking og þjálfun í samstarfi við Esjustofu, veitinga- og þjónustumiðstöð við Esjurætur (www.esjustofa.is) býður upp á ljúfa laugardagsmorgna á nýju ári; laugardaginn 16. janúar og laugardaginn 13. febrúar - góðu upphitun fyrir Valentínusardaginn!

02. Des. 2009 kl.16:53
lesa frétt...

AssA þátttakandi í Alþjóðlegri athafnaviku

Alþjóðleg athafnavika hófst í dag, 16. nóvember og stendur til 21. nóvember.  AssA tekur þátt í tveimur viðburðum í vikunni.  Fyrst ber að nefna hádegisfund í Háskólanum í Reykjavík þriðjudaginn 17. nóvember kl. 12:10 - 13:00, undir yfirskriftinni EF VIÐ - ÞÁ ÞÚ! Hvernig ná kvenfrumkvöðlar árangri? Á fundinum talar Svana Helen Björnsdóttir, varaformaður Samtaka sprotafyrirtækja og forstrjóri Stika ehf. Svana Helen var útnefnd fyrirmyndarfrumkvöðull (Female Entrepreneaurship Ambassador) af Enterprise Europe Network á Íslandi. Kristín Halldórsdóttir, verkefnastjóri Evrópumiðstöðvar Impru, Nýsköpunarmiðstöð Íslands og Ingibjörg Valgeirsdóttir, stofnandi AssA, þekking & þjálfun.  Fundarstjóri er Svafa Grönfeldt, rektor Háskólans í Reykjavík.

16. Nov. 2009 kl.20:33
lesa frétt...

Nýtt á Íslandi: Eyvindur & Halla

AssA, þekking & þjálfun í samstarfi við Esjustofu, veitinga- og þjónustumiðstöð við Esjurætur, býður upp á létta og ljúfa laugardagsmorgna fyrir hjón/pör sem vilja staldra við í hraða hversdagsins og eiga gæðatíma saman. Fyrsta námskeiðið fór fram s.l. laugardag og var afar vel lukkað og skemmtilegt. Næsta námskeið verður haldið laugardaginn 28. nóvember, sjá nánari upplýsingar hér.  Einnig er hægt að panta námskeiðið fyrir hópa.

07. Nov. 2009 kl.00:34
lesa frétt...

AssA á aðalfundi Félags Árneshreppsbúa

AssA, þekking & þjálfun, var með kynningu á starfi sínu á aðalfundi Félags Árneshreppsbúa sem haldinn var í dag. Félagið verður 70 ára á næsta ári og vill AssA hvetja allt ungt fólk frá Árneshreppi til að ganga í félagið sem er mikilvægur vettvangur til að standa vörð um byggð í Árneshreppi og sameiningartákn okkar allra sem unnum svæðinu. Árshátíð félagsins, Árneshreppsmótið, er frábært dæmi um það. Stjórnin fagnar öllum hugmyndum varðandi afmælisdagskrá á sjötugasta afmælisárinu.
 
 

01. Nov. 2009 kl.20:09
lesa frétt...

AssA kemur með Fjör í 45 mínútur inn á starfsstaðinn þinn

Það hefur sjálfsagt sjaldan verið eins mikilvægt og nú að hlúa vel að fólkinu sínu. AssA, þekking & þjálfun býður starfsstöðum upp á ,,Fjör í 45 mínútur" í vetur sem er skemmtileg tilbreyting í dagsins önn.  Áhersla er lögð á að efla starfshópinn, eiga skemmtilega stund saman og eignast öðruvísi minningar. 
 
,,Fjör í 45 mínútur" hentar bæði til að brjóta upp daginn á vinnutíma eða strax eftir að vinnu lýkur og hefur gefist vel áður en starfshópar gera sér dagamun. Mikilvægt er að hafa í huga að starfsánægja eykur árangur.  Frekari upplýsingar má finna hér.

24. Okt. 2009 kl.22:47
lesa frétt...

Námskeið: Hópeflisleikir og verkefni til að nota í kennslu og hópastarfi

AssA, þekking & þjálfun býður kennurum, starfsfólki félagsmiðstöðva og öðrum sem starfa með ungu fólki upp á námskeiðið ,,Hópeflisleikir og verkefni til að nota í kennslu og hópastarfi". Námskeiðið er kjörið fyrir alla þá sem vilja bæta verkfærum í verkfærakistuna og kynnast fjölbreyttum leiðum til að takast á við ólíka þætti sem kunna að koma upp í hópastarfi. Kenndir eru leikir sem hafa mismunandi markmið, ísbrjótar, nafnaleikir, samvinnuleikir og orkugjafar auk þess sem unnin verða verkefni sem stuðla að því að efla bæði samkennd og liðsheild innan hópsins.

16. Okt. 2009 kl.00:58
lesa frétt...

AssA þekking & þjálfun hlýtur styrk

AssA, þekking & þjálfun hlaut á dögunum styrk sem veittur var til atvinnumála kvenna. Fjöldi umsókna hefur aldrei verið meiri en alls bárust 261 umsókn og voru 38 viðskiptahugmyndir styrktar. Alls var 25 milljónum króna úthlutað. AssA var í hópi 16 efstu styrkþeganna og hlaut 600.000 kr. styrk til markaðssetningar. Styrkir sem þessir eru gríðarlega mikilvægir fyrirtækjum sem eru að stíga sín fyrstu skref. Ásta R. Jóhannesdóttir félags- og tryggingamálaráðherra og Ásdís Guðmundsdóttir sérfræðingur hjá átaksverkefninu Atvinnumál kvenna afhentu styrkina við athöfn í Iðnó og var þetta í 18 sinn sem úthlutað er úr sjóðnum.

07. Okt. 2009 kl.12:29
lesa frétt...

AssA Akureyri: Um 170 manns í þjálfun

AssA þekking & þjálfun var með starfsmannaþjálfun fyrir fyrirtæki og stofnanir, námskeið fyrir starfsfólk sem vinnur með ungu fólki og tók þátt í Degi símenntunar á Akureyri í síðustu viku.  Alls fóru um 170 manns í gegnum þjálfun hjá fyrirtækinu.  AssA er í góðu samstarfi við SÍMEY, Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar, sem sá um auglýsingar og bókanir.  Þjónustan var sniðin að þörfum hvers viðskiptavinars varðandi markmið, áherslur, tímasetningar, tímalengd og staðsetningu.  Óski viðskiptavinir á landsbyggðinni eftir þjónustu okkar biðjum við ykkur hiklaust um að hafa samband: assa@assaisland.is eða í síma 616 9770.

09. Okt. 2009 kl.20:07
lesa frétt...

AssA Akureyri: Dagur símenntunar 24. september

AssA þekking og þjálfun tekur þátt í Degi símenntunar á Akureyri þann 24. september n.k. SÍMEY, (Símenntunarmiðstöð Eyjafarðar), Kjölur og Eining-Iðja standa fyrir deginum.  Forsvarsmenn fyrirtækja eru hvattir til að brjóta upp daginn og bjóða starfsfólki sínu upp á stutta fyrirlestra.
 
Fjör í 45 mínútur - þéttum hópinn fyrir veturinn
AssA bíður upp á tilbreytingu í dagsins önn þar sem áhersla er lögð á að efla starfshópinn, eiga skemmtilega stund saman og eignast öðruvísi minningar.  Létt og fjörugt hópefli með leikjum, tónlist og verkefnum. 

15. Sept. 2009 kl.20:39
lesa frétt...

Stefnumót á Ströndum til 15. september

Stefnumót á Ströndum, atvinnu- og menningarsýning verður opin til 15. september n.k. Ásdís Jónsdóttir starfsmaður sýningarinnar tekur vel á móti gestum og gangandi sem gefst kostur á að fá innsýn inn í lífið á Ströndum. Hún segir að fjöldi gesta hafi þegar sótt sýninguna og margir séu að koma í annað og þriðja sinn með vini og ættingja. Gestir séu einnig að koma aftur til að lesa upplýsingaspjöldin sem fylgja hverjum bás en sýningin er afar yfirgripsmikil og  fróðleg. Brottfluttir hafa einnig haft á orði að það sé tilvalið að slá tvær flugur í einu höggi, bruna norður til berja og sjá sýninguna. AssA, þekking & þjálfun sér um framkvæmd Stefnumóts á Ströndum.

Forsetahjónin, herra Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Mousaieff, hafa sent forsvarsmönnum sýningarinnar bréf þar sem þau lýsa yfir ánægju sinni með heimsókn sína á Strandir, en forsetinn er verndari sýningarinnar.


10. Sept. 2009 kl.14:18
lesa frétt...