Fjör í 45 mínútur

 
AssA, þekking & þjálfun kemur með ,,Fjör í 45 mínútur" inn á starfsstaðinn þinn! Starfsánægja eykur árangur.
 
Markmið
Tilbreyting í dagsins önn þar sem áhersla er lögð á að efla starfshópinn, eiga skemmtilega stund saman og eignast öðruvísi minningar. Haustið er tíminn til að þétta hópinn fyrir veturinn.
 
Aðferðir
Létt og fjörugt hópefli með leikjum, tónlist og verkefnum.
 
Fyrir hverja?
Fjör í 45 mínútur er tilvalið fyrir alla vinnustaði. Hentar bæði til að brjóta upp daginn á vinnutíma eða strax eftir vinnu - kjörið seinnipartinn áður en starfshópurinn gerir sér dagamun.
 
Fjöldi
6 - 200 manns.
 
Verð
Tilboð miðast við fjölda
 
Pantanir
Panta má ,,Fjör í 45 mínútur" í síma 616 9770 eða með því að senda tölvupóst í netfangið assa@assaisland.is

,,Hjá Jarðborunum hf. vinnur samhentur hópur fólks sem finnst gaman að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni. Starfsfólkið er mjög fjölhæft, kraftmikið og duglegt.
 
Á haustfagnaði hjá skrifstofu Jarðborana var ákveðið að fá Ingibjörgu hjá fyrirtækinu AssA, þekking & þjálfun í heimsókn til okkar með hópeflisprógram. Ingibjörg hristi vel upp í hópnum, var með skemmtilega stemningu og kom okkur verulega á óvart. Dagskráin hennar byggðist á samheldni, trausti, hugmyndaflugi og var umfram allt skemmtilegt. Við vorum einstaklega ánægð með kvöldið og mælum eindregið með að fyrirtæki sem vilja viðhalda skemmtilegum starfsanda og gera sér glaðan dag fái Össu til að brjóta upp hefðbundið starf og styrkja sitt starfsfólk".

Elsa Björk Knútsdóttir
Fjárreiðu- og skrifstofustjóri
Sjá umsagnir
hér.
 
Verkefni Stjórnendaþjálfun Starfsmannaþjálfun Hópefli