AssA Hópefli

 
Fyrir hverja? 
Í haust og vetur verður gott að staldra við og þjappa saman vinahópnum, fjölskyldunni, starfsmannahópnum, bekknum eða öðrum góðum hópum og eignast öðruvísi minningar saman. AssA býður upp á hópefli fyrir alla.
 
Til hvers?
Sterkari hópur! Efla tengslin og rækta vináttu og væntumþykju.
 
Hvernig þá?
Með leikjum, samvinnuverkefnum, tónlist, leiklist, keppnum...og njóta!
 
Hvað? Hvenær? Hvar?
AssA, þekking & þjálfun sérsníðir dagskrá að ykkar þörfum hvað varðar áherslur, tímalengd, tímasetningu og staðsetningu. 
 
Frumefli - hvað er það?
Frumefli er fyrir hópa í startholunum.  Það auðveldar hópum að stíga fyrstu skrefin og gerir fyrstu kynnin hlýleg og skemmtileg!
 
 
,,Það dýrmætasta sem við stjórnendur höfum er starfsmannahópurinn okkar. Mikilvægt er að passa upp á hópinn, efla hann og hvetja með reglulegu millibili. Einn þáttur í því er að leika sér. En til þess að það sé framkvæmanlegt með góðu móti er gott að hafa færan þjálfara, og það er hún Ingibjörg. Hún fær hópinn til að horfa út fyrir rammann frá fyrstu stundu og eins og einn starfsmaður minn orðaði það: ,,Þetta er miklu skemmtilegra en að sitja í klukkutíma undir einhverjum fræðum".
 
Soffía Gísladóttir
Forstöðumaður Vinnumálastofnunar Norðurlands eystra.
 
Verkefni Stjórnendaþjálfun Starfsmannaþjálfun Hópefli
 
 
 
 
 
 
 
 Eyvindur og Halla. Nýtt!
Starfar þú með ungu fólki? Fjör í 45 mínútur!