
Undirbúningsnámskeið fyrir göngferðir um Strandir/Hornstrandir
AssA, þekking og þjálfun býður upp á undirbúningsnámskeið fyrir gönguhópa sem ætla að leggja leið sína á Strandir/Hornstrandir næsta sumar. Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem hyggjast ganga um austur Strandir, svæðið frá Norðurfirði í Hornvík. Siglingar með Reimari hjá Freydísi hafa notið sívaxandi vinsælda s.l. ár en hann siglir með göngufólk frá Norðurfirði inn á þetta fallega ósnortna svæði.
Áhersla er lögð á skipulagningu, leiðarval, pökkun, siglingar, þjónustu heimamanna, að ferðast í hóp, umgengni við náttúruna og hvernig maður getur fengið sem mest úr úr bæði ytra og innra ferðalaginu sem óhjákvæmilega á sér stað á göngu um þetta einstaka svæði.
Einnig er sérstök kynning á því sem Árneshreppur hefur upp á að bjóða en göngufólk hefur viðkomu í þessari einstöku og afskekktu byggð á leið sinni í friðlandið.
Leiðbeinandinn Ingibjörg Valgeirsdóttir er uppalin í Trékyllisvík, nyrstu byggð Stranda. Hún hefur margra ára reynslu af að ganga með hópa um svæðið frá Ófeigsfirði í Hornvík. Hún gjörþekkir svæðið, heimamenn og þá leyndardóma sem Strandirnar búa yfir.
Undirbúningsnámskeiðið, sem er sérsniðið að hverjum hóp fyrir sig, er ætlað bæði reyndu og óreyndu göngufólki. Áhugasamir hafið samband í síma 616 9770 eða sendið tölvupóst í netfangið ingibjorg@assaisland.is.


