Á vinnudegi hjá Actavis á Íslandi var ákveðið að fá fyrirtækið AssA, þekking & þjálfun, með okkur í starfsmannaþjálfun innan fyrirtækisins. Dagurinn var einstaklega skemmtilegur og gefandi. Vinnan þjappaði hópnum vel saman og Ingibjörg stýrði verkefnum á öruggan, frumlegan og skemmtilegan hátt. Takk kærlega fyrir okkur.
 
Harpa Þ. Böðvarsdóttir
Starfsmannastjóri Actavis.
 
 
 
Á námskeiðinu ,,Hópeflisleikir og verkefni til að nota í kennslu og hópastarfi" lærði undirrituð fjölda skemmtilegra leikja og verkefna sem munu nýtast vel í starfi. Aðferðirnar sem Ingibjörg Valgeirsdóttir kenndi eru fjölbreyttar, allt frá leiðum til að þjappa saman hópum til verkefna sem miða að því að æfa samhæfingu og reyna á samvinnu innan hópa. Námskeiðið var stórskemmtilegt og getur undirrituð svo sannarlega mælt með því.
 
 
Ingunn Helga Bjarnadóttir
Verkefnastjóri starfsþróunar, Akureyrarbær.
 
 
 
 
Við hjá landvinnslu Brims hf. á Akureyri ákváðum að fá hópeflisnámskeið fyrir alla okkar starfsmenn að loknum sumarleyfum til að styrkja hópinn fyrir komandi vetur og gera eitthvað skemmtilegt saman.  Ingibjörg Valgeirsdóttir hjá AssA, þekking & þjálfun sá um námskeiðið og var almenn ánægja með það í starfsmannahópnum sem telur um 120 manns á aldrinum 18 - 70 ára. Það eru yfirgnæfandi líkur á að við munum nýta okkur þjónustu Ingibjargar aftur síðar.
 
Ágúst Torfi Hauksson
Framkvæmdastjóri Brim hf. Akureyri.
 
 
                                            
                                             
Hugmyndahús Háskólanna er frumkvöðlasetur. Bakhjarlar þess eru Háskólinn í Reykjavík og Listaháskóli Íslands. Í Hugmyndahúsinu hafa um 50 ólíkir einstaklingar hjá a.m.k. 17 fyrirtækjum með afar fjölbreyttan bakgrunn fasta starfsaðstöðu. Þegar starfsemin fór af stað þekktist fólk lítið og samgangur milli fyrirtækja var minniháttar. Ingibjörg Valgeirsdóttir hjá AssA, þekking & þjálfun setti saman hópeflisdag fyrir Hugmyndahús Háskólanna sem var ómetanlegur hlekkur í því að hrista hópinn saman. 

Verkefni hópeflisdagsins miðuðu að því að fólk jafnvel innan sömu fyrirtækjanna kynntist betur og komst að hlutum sem það vissi ekki um hvort annað. Í lok dags var fólk hlæjandi og skrafandi um viðskiptahugmyndir sínar. Við teljum að hópeflið sem AssA, þekking & þjálfun skipulagði og sá um hafi ýtt undir samstarf fyrirtækja og einstaklinga í Hugmyndahúsi Háskólanna. Við mælum með þeirri þjónustu sen AssA, þekking & þjálfun veitir og munum nýta okkur hana aftur.

                                  Gunnar Karl Níelsson
                                  Verkefnastjóri Hugmyndahúss Háskólanna
 
 
                                             
Hjá Jarðborunum hf. vinnur samhentur hópur fólks sem finnst gaman að takast á við fjölbreytt og krefjandi verkefni. Starfsfólkið er mjög fjölhæft, kraftmikið og duglegt.
 
Á haustfagnaði hjá skrifstofu Jarðborana var ákveðið að fá Ingibjörgu hjá fyrirtækinu AssA, þekking & þjálfun í heimsókn til okkar með hópeflisprógram. Ingibjörg hristi vel upp í hópnum, var með skemmtilega stemningu og kom okkur verulega á óvart. Dagskráin hennar byggðist upp á samheldni, trausti, hugmyndaflugi og var umfram allt skemmtileg. Við vorum einstaklega ánægð með kvöldð og mælum eindregið með að fyrirtæki sem vilja viðhalda skemmtilegum starfsanda og gera sér glaðan dag fái Össu ti að brjóta upp hefðbundið starf og styrkja sitt starfsfólk.
 
                                  Elsa Björk Knútsdóttir
                                  Fjárreiðu- og skrifstofustjóri
 
 
                                             
Undirrituð var svo heppin að fá að sækja starfsmannaþjálfun hjá Össu nú á haustdögum ásamt hópi vinnufélaga. Þrátt fyrir að hafa starfað saman um nokkurt skeið þekktist hópurinn misvel innbyrðis, sumir jafnvel ekkert. Á námskeiðinu fórum við í gegnum hópaverkefni af ýmsu tagi, t.d. sjálfsþekkingu, styrkleika/veikleika hópsins/einstaklingsins, nánd, traust, sköpun, leiki og margt fleira áhugavert.
 
Eftir námskeiðið stóðum við sem sterkir einstaklingar innan samstillts hóps. Í stuttu máli, þá er námskeið af þessu tagi eitthvað sem allir vinnustaðir ættu að nýta sér.  Ávinningurinn: Ánægðara og meðvitaðra starfsfólk - sem er jú meginstyrkur hvers fyrirtækis. Takk fyrir aldeilis frábært námskeið.
 
                                  Guðlaug Ringsted
                                  Lundarskóli
 
 
Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar hefur nýtt sér starfsmannaþjálfun / hópefli frá Össu, þekkingu og þjálfun innan námskeiða og einnig innan fyrirtækjaskóla með afar góðum árangri. Góð starfsmannaþjálfun / hópefli er vandmeðfarin og því hefur verið mikill fengur af þessu samstarfi en sú sjálfskoðun og jákvæðni  sem þjálfuninni fylgir þéttir starfsmannahópana og stuðlar að árangursríkari uppbyggingu sí- og endurmenntunar innan fyrirtækja og starfsmannahópa.

Valgeir Magnússon
Verkefnastjóri / Ráðgjafi
 

 
Það dýrmætasta sem við stjórnendur höfum er starfsmannahópurinn okkar. Mikilvægt er að passa upp á hópinn, efla hann og hvetja með reglulegu millibili. Einn þáttur í því er að leika sér. En til þess að það sé framkvæmanlegt með góðu móti er gott að hafa færan þjálfara, og það er hún Ingibjörg. Hún fær hópinn til að horfa út fyrir rammann frá fyrstu stundu og eins og einn starfsmaður minn orðaði það: ,,Þetta er miklu skemmtilegra en að sitja í klukkutíma undir einhverjum fræðum".
 
Soffía Gísladóttir
Forstöðumaður Vinnumálastofnunar Norðurlands eystra.
 
 
 
                                               
Assa, þekking & þjálfun hélt utanum um tvo hluta starfsdags Vesturgarðs, Þjónustumiðstöðvar Vesturbæjar. Fyrri hluti var hópefli í upphafi dags og seinni hlutinn í lok dags samanstóð af traust- og samvinnuverkefnum.

Fyrri hluti starfsdags: Hópefli
Starfsmennirnir voru ánægðir með hópeflið. Um var að ræða mjög fjölbreyttan hóp starfsmanna frá ólíkum starfsstöðum sem þekktust lítið sem ekkert. Hluti af hópnum er ekki íslenskumælandi. Þetta leysti Ingibjörg mjög vel og allir tóku þátt. Einnig skal bent á að hópurinn var stór (53) og því
reyndi enn meira á hæfileika Ingibjargar til að ná til allra.
 
Seinni hluti starfsdags: Starfsmannaþjálfun
Ingibjörg vann þennan hluta frábærlega og almennt var mikil ánægja hjá starfsmönnum. Hér var hópnum skipt niður eftir starfsstöðum þjónustumiðstöðvarinnar. Hver hópur tók að sér verkefni og leysti þau út frá sínum vinnustað. Sem fyrr tókst Ingibjörgu aðdáunarlega upp við að halda þessum stóra, sjálfstæða og marglita hóp við efnið ásamt því að viðhalda gleðinni við verkefnavinnuna.
 
Nokkur ummæli þátttakenda:
-Hún (Ingibjörg) viðhélt eftirvæntingunni, maður vissi aldrei hvað kom næst.
-Maður hafði alveg rosalega gott af þessu, hún fékk mann til að gera hluti sem maður er ekki vanur að gera.
-Ég fæ alltaf kjánahroll í svona verkefnum og því kom mér á óvart hvað þetta var gefandi.
-Mér finnst mjög óþægilegt að vera í svona hópeflisleikjum en hún var skellegur og góður stjórnandi. Ég naut seinni hlutans mjög mikið.

Samantekt:
Vinna Ingibjargar skilaði sér vel inn í starfsmannahópinn og skapaði góða stemningu við framkvæmd starfsdagsins. Sú stemning sem Ingibjörg skapaði á eftir að stýra áframhaldandi vinnu innan starfsstöðvanna. Hún á hrós skilið fyrir að ná utan um hópinn og fá hann allan til samvinnu.
 
                                  Sigþrúður Erla Arnardóttir, sálfræðingur
                                  Framkvæmdastjóri Vesturgarðs, Þjónustumiðstöðvar Vesturbæjar.
 
 
 
 

Þegar við réðumst í risavaxið kynningar- og tengslaverkefni á Ströndum sumarið 2009 undir heitinu Stefnumót á Ströndum þá vorum við svo heppin að það var nýbúið að stofna fyrirtækið AssA, þekking & þjálfun. Við sem stóðum að verkefninu sáum strax að þar væri mögulega að finna þá þekkingu sem þurfti til að vinna verkefninu framgang.
 
Við urðum ekki fyrir vonbrigðum. Ingibjörg Valgeirsdóttir stýrði verkefninu af mikilli fagmennsku og hélt um alla þræði þess. Eiginleikar hennar til samskipta við fólk voru verkefninu ómetanlegir, en það var einn mikilvægasti þáttur þess, að fá fólk á stóru svæði til að vinna saman að einni útkomu.
 
Dugnaður, skilningur á umhverfi verkefnisins og skipulagshæfileikar Ingibjargar komu greinilega í ljós strax á fyrstu dögum verkefnisins, sem stóð yfir í ríflega þrjá mánuði. Hún var óþreytandi að halda mörgum tugum ólíkra aðila að verki á sama tíma á þann veg að allir voru tilbúnir að leggja sitt af mörkum svo endanleg niðurstaða þess yrði þeim öllum til sóma. 
 
Það er engin spurning að þegar við þurfum á starfsfólki að halda í viðlíka eða skyld verkefni þá verður Ingibjörg og fyrirtæki hennar AssA, þekking & þjálfun okkar fyrsti kostur. Reynslan einfaldlega segir okkur það.
 
Sigurður Atlason
Í framkvæmdastjórn Stefnumóts á Ströndum, atvinnu- og menningarsýningar á vegum Þróunarsetursins á Hólmavík og Arnkötlu 2008.  Framkvæmdastjóri Strandagaldurs ses og formaður stjórnar Ferðamálasamtaka Vestfjarða.